Fimmtudag og föstudag, 7.- 8.október, verður haldin á Grand Hótel Reykjavík fyrsta alhliða flutningasýningin á Íslandi, Flutningar 2010.
Þar munu fyrirtæki á flutningasviði kynna allt það nýjasta á sviði sjó-, land og loftflutninga og auk þess m.a. vörustjórnun og lagerhald.
Á sýningunni verður líka fyrirlestradagskrá þar sem rætt verður um þróun flutninga til og frá Íslandi á undanförnum arum og hvaða áhrif magnbreytingar hafa á flutningamarkaðinn. Ennig verður kynning á tolla og flutningakerfi og gagnaöryggi, skoðuð flotastýring og eftirlit, rekjanleiki og gagnsæi svo eitthvað sé nefnt.
Það er frítt inn á sýninguna og fyrirlestra en sýningin verður opin báða dagana frá kl. 12 til 18.