Hvað getum við gert fyrir þig?

TNT tryggir að pakkarnir þínir, skjölin og aðrar vörur sem þú sendir skili sér á réttum tíma. 

Þjónusta okkar nær til yfir 200 landa en nákvæmur sendingartími fer eftir afhendingarstað. Orðspor okkar er byggt á þeim metnaði að mæta þörfum viðskiptavina okkar.

Þú segir okkur hvað þú vilt og við framkvæmum. Sure we can!

Umhverfisábyrgð

Við viljum vera leiðandi á okkar sviði með því að sýna ábyrgð gagnvart umhverfinu og heiminum. TNT  dregur úr kolefnislosun um allan heim með umhverfisátakinu Planet Me.

Frá árinu 2002 hefur TNT lagt til mannskap, þekkingu og aðstöðu til þess að styðja við World Food Programme,stærstu mannúðarsamtök í heimi.

Úr litlu fyrirtæki ...

  • Ken Thomas stofnaði eigið flutningafyrirtæki í Ástralíu árið 1946 með einn flutningabíl
  • Á 6. áratugnum blómstraði Thomas Nationwide Transport þegar byrjað var að bjóða upp á flutninga allan sólarhringin
  • Í 50 ár hefur TNT stækkað og dafnað og er í dag orðið að alþjóðlegu fyrirtæki sem heldur úti víðtæku flutninganeti í lofti og á landi um allan heim.

Fræðist meira um sögu TNT (á ensku).

... í alþjóðlegt stórfyrirtæki

  • Hjá TNT Express starfa yfir 75.000 manns.
  • Við starfrækjum 26.000 farartæki á landi og 47 fragtflugvélar.
  • Í flutninganeti okkar eru meira en 2.300 birgðageymslur sem fyrirtækið á og starfrækir í 200 löndum.

Fræðist meira um TNT fyrirtækjasamstæðuna (á ensku).