TNT á sér langa og áhugaverða sögu sem spannar meira en 250 ár. Hollenskar rætur fyrirtækisins ná allt til ársins 1752. En þó var það ekki fyrr en 1946 að TNT eins og við þekkjum það varð til, en það gerðist hinum megin á hnettinum, í Ástralíu. Í yfir 60 ár hefur TNT vaxið og dafnað sem alþjóðlegt flutningafyrirtæki með sinn eigin flugflota. En mestur vöxtur fyrirtækisins hefur orðið í gegnum samruna og uppkaup fyrirtækja.
Söguágrip
2008 TNT kynnir sig á alþjóðavísu undir nýju slagorði: „Sure we can“.
2007 TNT hleypir Planet Me af stokkunum.
2006 Logistik-hluti TNT seldur.
2005 TPG Post N.V. breytir nafni í TNT N.V.
2004 TPG N.V. kaupir fyrirtækið Wilson Logistics Group.
2002 TPG og World Food Programme fara í alþjóðlegt samstarf.
1998 Hollenska póstfyrirtækið KPN kaupir TNT Express Worldwide, TNT limited og GD BV og stofnar TPG Post Group, sem samanstendur af hollenska póstinum og TNT International Express.
1992 TNT Express fer í samruna sem samanstendur af TNT Limited og GD Net BV, sem á póstþjónustur í Kanada, Frakklandi, Hollandi, Svíþjóð og Þýskalandi. TNT Ltd. og GD eiga hvort um sig 50% í TNT Express Worldwide.
1991 TNT Express Worldwide kemur á fót European Road Service (vöruflutningakerfi á vegum í Evrópu). TNT Express og Skypak sameinast undir merkjum TNT Express Worldwide.
1988 TNT Ltd. kaupir XP Express Parcel System.
1969 TNT Ltd. opnar skrifstofur á Nýja-Sjálandi, í Bandaríkjunum, Kanada, Brasilíu, Suðaustur-Asíu, Austurlöndum fjær og Evrópu.
1967 TNT útvíkkar starfsemina og sameinast Altrans.
1961 TNT Ltd. skráð í kauphöllina í Sydney.
1946 Thomas Nationwide Transport stofnað í Ástralíu af Ken Thomas.