Flutningaþjónusta TNT

Hvaða þjónustu hefur fyrirtækið þitt þörf fyrir í dag?

TNT þjónustar sendinguna þína alla leið: frá því hún er sótt, í gegnum víðtækt flutninganet, tollafgreiðslu og þar til sendingin er afhent móttakanda á fyrirfram áætluðum degi.

Hægt er að velja um hrað- og fragtþjónustu. Þannig má finna bestu leiðina fyrir sendinguna þína. 

Hraðsendingar

TNT ábyrgist að skjala- og vörusendingar verði afhentar fyrir lokun fyrirtækja næsta virka dag til stærstu borga Evrópu og eins hratt og mögulegt er til annarra staða. Skoða meira um hraðsendingar.

Fragtsendingar

TNT býður sveigjanlega og víðtæka inn- og útflutningsþjónustu til yfir 200 landa. Þjónustuframboð TNT uppfyllir þínar þarfir. Skoða meira um fragtsendingar.  

Sérþjónusta

TNT býður víðtæka möguleika á afhendingu á mjög mikilvægum sendingum með hraðboða eða öðrum sérlausnum. Skoða meira um sérsendingar.

Vefþjónusta

Fyrirtækið þitt getur skipulagt, sent og rakið sendingar með rafrænum hætti. Með rafrænu flutningakerfi getur þú gert TNT-kerfið að hluta af þinni daglegu rútínu. Skoða meira um vefþjónustur.