Þegar þú sendir mikilvæga sendingu þá getur þú verið áhyggjulaus, því TNT sér um sendinguna alla leið inn á gólf hjá móttakanda. Innifalið í verði TNT er öll þjónusta við sendinguna, sendingarkostnaður og tollafgreiðsla, hver sem stærð hennar er, frá sendanda til móttakanda.

Vörusendingar

Þurfi fyrirtæki þitt að senda eða fá mikilvægar vörusendingar fljótt og örugglega, þá hefur TNT lausnina fyrir þig. Öflugt flutninganet tryggir að sendingar eru afhentar næsta virka dag til allra helstu borga Evrópu og með hraðasta sendingarmáta sem völ er á til annarra staða.

Skjalasendingar

Hægt er að velja sérstakan sendingarmáta fyrir skjöl sem teljast vera ýmiss konar pappírar, svo sem skýrslur og handrit, en jafnframt flokkast geisladiskar með gögnum undir skjalasendingar.

Nánari upplýsingar um verð

Nánari upplýsingar um svæðaskiptingu

Nánari upplýsingar um flutningstíma.