Starfsfólk TNT býr yfir þekkingu og reynslu til að flytja hættulegan varning án áhættu.
TNT flytur hættulegar sendingar eftir ákveðnum flutningsferlum til að tryggja sem öruggastan flutning þeirra.
Mikilvægt er að sendandi láti af hendi öll fylgigögn sem varða hættulegar vörur.
Miklu máli skiptir að öll númer séu rétt svo sending komist á áfangastað án tafa.
Í listanum hér að neðan má sjá þann varning sem við flytjum.
Þessi listi á við um flutninga á landi og í lofti, yfir- og undirhættuflokka, tómar pakkningar sem og undantekningar og stærðartakmarkanir.
Sértu í vafa um hvort við getum flutt sendinguna þína, hafðu samband við þjónustufulltrúa í síma 580 1010.
