Algengar spurningar sem berast til þjónustufulltrúa TNT

Hvar er sendingin mín?

Þú getur fundið hvar sendingin þín er stödd með því að rekja sendinguna með sendingarnúmeri hennar.

Hvað kostar að senda til .....? 

Þú getur fundið verð í sendingu með því að fara í verðskrá TNT.

Hvað tekur langan tíma að senda pakka til ....?

Þú getur fengið áætlaðan flutningstíma sendinga með því að slá inn upplýsingar um það hvaðan og hvert sendingin er send. Skoða: Áætlaður flutningstími sendinga.

Er pakkinn minn tryggður?

TNT ábyrgist innihald sendingar samkvæmt flutningsskilmálum allt að 20 USD per/kg í hraðsendingu og 15 USD per/kg í fragtsendingu, þó aldrei meira en sem nemur verðgildi innihalds.

Hvert á ég að koma með sendinguna?

Á höfuðborgarsvæðinu sækir TNT sendingar til fyrirtækja. Þú getur bókað sendingu með því að gefa upp staðsetningu, tíma og upplýsingar um það hvenær má sækja sendinguna (og annan tíma til vara). Þurfi að sækja utan skrifstofutíma frá kl. 09-16, hafðu samband við þjónustufulltrúa í síma 580 1010.

TNT er í samstarfi við Póstinn þannig að einstaklingar á höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðinni geta alltaf farið með sendinguna á næsta pósthús.