Fylgibréfið inniheldur allar upplýsingar um sendinguna og fylgir henni alla leið. 

Fylltu út fylgibréfið, skýrt og greinilega, sérstaklega nöfn og heimilisföng sendanda og móttakanda.

Sendingarnúmer (e. Consignment Number)

TNT úthlutar hverri sendingu sérstöku sendingarnúmeri. Það er fyrir neðan strikamerki efst í hægra horni fylgibréfsins. 

Sendingarnúmerið getur þú notað til að rekja ferðalag sendingarinnar. 

Consignment Note

Vinstri hlið, ofan frá

Svæði 1 - Reikningsnúmer sendanda

Settu inn TNT reikningsnúmer sendanda. Ef þér hefur ekki verið úthlutað númeri, vinsamlegast hafðu samband við þjónustufulltrúa.

Svæði 2 - Móttakandi greiðir flutningskostnað

Ef móttakandi greiðir flutningskostnaðinn, þarf að haka í þennan reit og skrá TNT-reikningsnúmer móttakanda. Ef þú ert ekki með reikningsnúmer móttakanda, hafðu samband við þjónustufulltrúa. Sendandi er alltaf ábyrgur fyrir öllum ógreiddum flutningskostnaði.

Svæði 3 - Tilvísunarnúmer viðskiptavinar (e. Customer Reference)

Tilvísun viðskiptavinar getur verið 24 stafir á lengd og er prentað á reikninginn. Hægt er að nota það til að rekja sendinguna. Þú getur t.d. skráð raðnúmer á vöru sem verið er að senda í þennan reit.

Svæði 4 - Frá (heimilisfang sendanda)

Settu inn nafn sendanda, heimilisfang, póstnúmer, stað, tengilið og símanúmer.

Svæði 5 - Til (heimilisfang móttakanda)

Settu inn nafn móttakanda, heimilsfang, póstnúmer, stað, tengilið og símanúmer. ATH! Mjög mikilvægt er að skrá símanúmer móttakanda. Óheimilt er að senda á pósthólf.

Svæði 6 - Afhendingarstaður

Ef afhendingarstaður er annar en heimilisfang móttakanda þá skal setja það hér inn þ.e. heimilisfang, póstnúmer, stað auk upplýsinga um tengilið og símanúmer. ATH! Mjög mikilvægt er að skrá símanúmer móttakanda. Óheimilt er að senda á pósthólf.

Svæði 7 - Hættuleg vara (e. Dangerous Goods)

Hakaðu í viðeigandi reit þegar um hættulega vöru er að ræða. Vinsamlegast hafðu samband við þjónustufulltrúa.

UN number

UN-númer tilgreinir þann flokk sem hættulega varan tilheyrir.

Hægri hlið

Svæði 8a) - Þjónusta

Merktu við þá þjónustu sem óskað er eftir. Express eru hraðsendingar og geta verið skjalasendingar (e. documents) eða tollskylt (e.non-documents). Skjalasendingar eru þær sendingar sem eingöngu innihalda pappíra. Ef þú ert í vafa hafðu samband við þjónustufulltrúa. Fragtsendingar eru Economy express - non documents.

Svæði 8b) - Viðbótarþjónusta

Þessi þjónusta er ekki í boði frá Íslandi.

Svæði 9 - Sérstakir afhendingarskilmálar

Tilgreindu ef sérstakrar meðhöndlunar er þörf við afhendingu sendingarinnar.

Svæði 10 - Innihaldslýsing

Hér þarf að koma fram:

  • almenn innihaldslýsing
  • fjöldi hluta sem eru af sömu stærð og þyngd
  • þyngd í kílóum og grömmum
  • mál í senitmetrum (lengd x breidd x hæð)
  • Vinsamlegast gefið upp tollskrárnúmer ef það er vitað.

Svæði 11 - Verðmæti innihalds

Vinsamlegast gefðu upp verðmæti innihalds sendingar, það sama og er á reikningnum sem fylgir vöru.

Neðst, frá vinstri

Undirskrift

Skrifaðu undir og settu dagsetningu.

Móttekið af TNT 
Starfsmaður TNT kvittar fyrir mótttöku og skráir dagsetningu og tíma. Viðskiptavinur heldur eftir eintaki sendanda.

Sendingarnúmer (e. Tracking number)
Sendingarnúmerið er níu (9) tölustafir neðan við strikamerkið og það getur þú notað til að rekja sendinguna. 

TNT skilmálar
Flutningsskilmála TNT er að finna á bakhlið fylgibréfs.