Pökkunarleiðbeiningar

 

TNT tekur á móti sendingum sem eru í upprunalegum umbúðum frá framleiðanda eða flutningsaðila.

Vinsamlegast hafðu í huga meðfylgjandi leiðbeiningar til að tryggja að sendingin komist heil á höldnu á áfangastað.

Hér eru frekari upplýsingar um hámarksstærðir og -þyngdir sendinga.

Viðeigandi pakkningar

Proper Packaging Kassinn utan um vöruna skal vera úr sterku efni sem þolir álag.

Check the weightAthugaðu hversu mikla þyngd kassinn getur borið og farðu ekki yfir hámarkið. Vertu viss um að kassinn sé aldrei skemmdur (notaður eða skemmdur kassi getur tapað á milli 30-60% af styrk sínum) og að öll brot séu óskemmd. 


Proper PackagingPakkningin ætti að hafa nógu mikið slétt og hreint yfirborð til að hægt sé að festa fylgibréfið eða flutningsleiðbeiningar án þess að hafa áhrif á innihald kassans. Ef svo er ekki þá verður að setja innihaldið í stærri kassa. Fjarlægðu alla eldri límmiða, heimilisföng og strikamerki.

 

Proper Packaging Hlutir með viðkvæmt yfirborð sem þola ekki að vera merktir með límmiðum eða annað sem skemmist auðveldlega ætti alltaf að setja í kassa.

 

Uppfylling

Fillers and Cushioning MaterialSettu lag af mjúku undirlagi í botn kassans og hafðu a.m.k. 5 cm þykkt. Viðkvæmir og þyngri hlutir þurfa meiri mýkt í botninn, til hliðanna og efst í kassann. 

  

Fillers and Cushioning materialPakkaðu hverjum hlut fyrir sig í hlífðarefni og settu í miðjan kassann. Tryggðu að hlutir séu aðskildir í kassanum og að uppfyllingarefni sé sett  til hliðar, horn, botn og efst í kassann. 

 

  Fillers and Cushioning material 

Fylltu allt rými vandlega með uppfyllingarefni og bættu öðru lagi við efst í kassann ef þörf er á.

  

Uppfyllingarefni hefur takmarkaða getu til að vernda þyngri hluti úr málmi, s.s. varahluti í bíla. Slíkir hlutir ættu alltaf að vera fluttir í sérstökum sérstyrktum umbúðum. Litlir, lausir aukahlutir verða að vera settir í plastpoka með frauði áður en þeir eru settir í kassann. 

Prentað efni 

Prentuðu efni, s.s. tímaritum og blöðum, verður að pakka á réttan hátt.  Það er gert til að koma í veg fyrir að innihaldið færist til í flutningum og minnki líkur á óhreinindum. Pakkaðu prentuðu efni inn í plast og settu síðan uppfyllingarefni í botn, hliðar og efst í kassann.

Upprúllað efni

Efni sem er rúllað upp, s.s. teppum, textílefni eða pappír, ætti að vera pakkað í plast. Heimilisfangi sendanda og móttakanda í tvíriti skal tryggilega fest á plastið. Pakkaðu vörunni í bóluplast eða styrktarplast áður en hún er sett í ytri pappaumbúðir. 

Frágangur sendinga

Sealing PackagesMerkimiða, reikninga og önnur fylgiskjöl ætti að vera hægt að festa á pakkann (á slétt yfirborð) þannig að sjálfvirkar flokkunarvélar og starfsmenn TNT geti lesið strikamerki.  

 

Sealing Packages Gættu þess að það séu engar oddhvassar brúnir eða horn sem skaga út á pakkanum. Breiddu yfir slíkar brúnir með bylgjupappa eða svipuðu efni sem er límt vandlega á. Innsiglaðu síðan pakkann með því að líma þrjá 5 cm breiða renninga af þrýstingsþolnu límbandi ofan og neðan á pakkann. 

 

Ekki má nota gjafapappír, plastfilmu fyrir heimili, málningarlímband, snæri eða kaðla MÁ EKKI NOTA. Pappírinn rifnar og snæri og kaðlar festast í sjálfvirkum flokkunarvélum. TNT áskilur sér rétt til að hafna vörum sem pakkað er í pappír eða með snæri eða köðlum. 

 

Sealing Packages Þegar kassa er lokað með límbandi, notaðu eina línu af límbandi yfir lokin á pappakassanum og tvær línur með hliðunum til styrkingar. Því þyngri sem pakkinn er þeim mun meira límband þarf. Á mjög þunga kassa er æskilegt er að nota sterka plastvafninga og vefja í að minnsta kosti tvær áttir

 

Sealing PackagesMundu: Áður en vörusending er innsigluð: Settu afrit af miða með heimilisfangi sendanda og símanúmeri sem og heimilisfangi og síma- eða faxnúmeri móttakanda inn í pakkann. Einnig er upplagt að setja nafnspjald eða bréfahaus í pakkann. Þetta auðveldar TNT að koma sendingu til skila ef ytri merkingar detta af í flutningi.

 

Heimilisföng og merkingar

Addressing and labelling Notaðu merkimiða þar sem greinilega kemur fram bæði heimilisfang sendanda og móttakanda. Hafðu ávallt póstfang og símanúmer móttakanda á fylgibréfum og merkimiðum. Póstfang verður að vera heimilisfang, því ekki er hægt að afhenda sendingar á pósthólf. 

 

Notaðu staðlaðan TNT-merkimiða prentaðan með sérstöku merkimiðaforriti til að merkja sendingu. Vinsamlegast forðastu notkun á notuðum umbúðum til þess að tryggja að vörur skemmist ekki og taktu alla gamla merkimiða af pakkanum ef við á. Heimilisfang sendanda og móttakanda verður að koma fram á pakkanum, sem og á TNT-fylgibréfinu.

 

Festu TNT-fylgibréfið tryggilega ofan á pakkann. Þetta tryggir að pakkanum sé stillt rétt upp í flutningum. TNT getur ekki tryggt að farið sé eftir miðum sem segja til um hvernig pakki á að snúa, t.d. „UP" eða „This End Up". Það er meðal annars vegna þess að notaðar eru sjálfvirkar vélar til þess að flokka pakka. Gakktu úr skugga um að strikamerki sé ávallt sýnilegt og að það krumpist ekki eða verði skítugt.

 

 

Að senda sendingu

Vinsamlegast hafðu samband við TNT Hraðflutninga til að fá sendingu sótta eða til að fá svar við spurningum um þjónustu okkar.

Vinsamlegast:

  • Festu TNT-merkimiða eða eyðublöð ofan á pakkninguna.
  • Prentaðu merkimiða á prentara sem virkar sem skyldi. Strikarmerki á TNT-merkimiða er notað til þess að flokka pakka á réttan stað og því gæti illa prentaður merkimiði ekki virkað og valdið töfum.
  • Settu aðeins TNT-merkimiða eða eyðublöð á pakkann.
  • Gakktu úr skugga um að TNTmerkimiðinn standist kröfur um stærð strikamerkis og hafðu samband ef eitthvað er óljóst í sambandi við útfyllingu eyðublaða.

Forðast skal að:

  • Setja límband eða plastfilmu yfir TNT-merkimiða eða eyðublað.
  • Setja TNT-merkimiðann eða eyðublað þar sem það fer fram af brún kassans.
  • Krumpa TNT-merkimiðann þegar hann er festur á pakkann.
  • Blettir eða rispur komi á TNT-merkimiðann eða strikamerkið.