Leiðbeiningar um sendingar á vörubrettum

Hlutir sem eru þyngri en 70 kg verður að setja á bretti til að tryggja stöðugleika og vernda vöruna.

Vinsamlegast fylgdu þessum leiðbeiningunum til að tryggja öryggi í flutningi á brettavöru:

Vörubretti (e. Pallet)Vörubretti (e. Pallets)
Vörubretti er skilgreint sem lágt færanlegt flutningsmót búið til úr viði, plasti, stáli, trefjum eða blöndu af þessum efnum. Lyftari eða tjakkur er notaður til þess að færa brettið. 

 

 

 

 

Pallets Yfirborð vörubrettisins verður að vera að lágmarki 15 cm hæð frá jörðu. 

 

  

Eurobretti (e. EuroPallets) Eurobretti (Euro-size) er 120 cm langt, 80 cm breitt og 15 cm hátt. Hámarksþyngd sem Eurobretti ber er 1.000 kg og hámarkshæð er 180 cm.


Báruð bretti (e. Corrugated Pallets)

Mörg fyrirtæki eru farin að nota báruð bretti, þar sem þau eru samþykkt fyrir flugsendingar. Í mörgum tilfellum eru báruð bretti léttari og auðveldari að endurvinna. Mælt er með því að viðskiptavinir noti vatnsþolin bretti sem eru gerð úr vatnsvörðu efni. Óvatnsvarin bretti geta auðveldlega misst styrk í bleytu. Vertu viss um í hvernig aðstæðum brettið verður í flutningi og ræddu við birgja til að tryggja að rétta brettið sé valið. 

PalletsÞegar raðað er á bretti notaðu þær aðferðir sem tryggja best stöðugleika og styrk. Kössum ætti að stafla beint ofan á hvern annan því það gefur hámarksstyrk þegar bretti er fullhlaðið.  

Kössum ætti aðeins að stafla á víxl ofan á hvern annan þegar einstakir kassar og innihald þeirra mynda sterka heild.  

Pallets Pýramýdalöguð hleðsla á bretti skapar vandamál í flutningum. Þegar yfirborðið er ekki jafnt veikir það pökkun brettis og getur valdið því að innihaldið skemmist vegna annarra sendinga.

 

PalletsKassar sem standa út fyrir brún brettis eru í mikilli hættu á að skemmast. Þessi aðferð við að raða á bretti er ekki góð því þjöppunarstyrkurinn frá toppi til botns minnkar. 

 

Kistur
Notkun á flutningskistum er góð leið til að vernda sendinguna frá skemmdum og koma í veg fyrir að hlutir týnist úr sendingu. Það er lykilatriði að hönnun kista og efni sé vel úr garði gert svo þær nýtist eins og til er ætlast. Kistur munu aldrei verða betri en veikasti hluti þeirra og í hönnuninni eru hornin mikilvægasti hlutinn.

Kista á bretti 

Bygging kista

Kistur hafa mismunandi innri styrk í hlutfalli við aukinn þunga sendingar. Þetta þýðir að hönnun og efni sem notuð eru í kistuna verða að taka mið af þyngd hlutanna sem í þær fara. 

 

 

PalletsYfirpakkning (e. Overpacking)
Yfirpakkning umlykur hluti og verndar vöru fyrir hnjaski á svipaðan hátt og kista gerir. Sýnishorn geta verið mismunandi að lögun og hægt að sníða að þörfum viðskiptavina. Kostir við yfirpakkningar eru að hætta á skemmdum minnkar og varan hreyfist síður í flutningum.  

 

 

PalletsTómarúm
Ef kassar eru ekki fylltir þá er hætta á þeir geti krumpast og kramist undan þunga af öðrum sendingum á sama bretti. Kassi á að geta borið fjórfalda til fimmfalda eigin þyngd. Tómarúm í kassa minnkar styrk hans sem leiðir til skemmda og gerir bretti mjög óstöðug. Tryggið að allt rými hafi verið fyllt með viðeignandi uppfyllingarefni, til dæmis frauðplasti eða bylgjupappa áður en kassa er lokað.

 

Langir hlutir
Langir hlutir þurfa sérstaka pökkun til að koma í veg fyrir að þeir svigni og beygist á meðan flutningi stendur. Vinsamlegast notaðu styrkta hólka, sterkan bylgjupappa eða stuðning úr tré. Til þess að kanna hvort hlutur sveigist of mikið er hægt að lyfta honum í miðjunni og athuga hversu mikil sveigja kemur fram. Styrkingar er þörf ef sveigja er mikil. Skoðaðu jafnframt hámarksstærðir TNT nánar til þess að fræðast um takmarkanir á lengd hluta sem TNT getur flutt.

Tunnur

Tunnur Tunnur festar á bretti
Tunnur með vökva geta verið mjög þungar og því þarf að gæta þess að þyngd þeirra fari ekki yfir hámarks burðarþol brettisins.

  Maximum kg

 

 

Pallets - Corrugated SheetPallets - Corrugated SheetBylgjupappi
Bylgjupappi þarf að vera á milli tunnu og brettis og verður hann að ná undir alla tunnuna. Bylgjupappi dregur úr sliti og förum eftir festingar.   

HlífðarefniHlífðarefni
Hlífðarefni er notað utan um og á milli tunna. Það gefur eftir þannig að hægt er að herða bindingar þéttingsfast. Þetta gefur verið t.d. viður eða þykkur papír. Slíkt er gert til þess að koma í veg fyrir að stál nuddist saman og losni auk þess sem þetta dreifir álaginu á bindingu. 

Pallets - Loading the drumsHleðsla tunna
Láttu ekki tunnur standa út fyrir brettið og hafðu þunga sem næst miðju brettisins. Ef tunnurnar eru fleiri en ein ætti að binda þær vandlega saman. Notaðu eins lítið svæði á brettinu eins og mögulegt er.


Binding - Festingar
Mælt er með stálbindingu vegna þess að hún teygist lítið. Binda skal margar tunnur saman til að mynda eina trausta heild. Notaðu hlífðarefni milli bindinga og tunna til að dreifa þyngdinni og koma í veg fyrir að þær hreyfist. Binda skal eins nálægt hliðum tunnunnar og hægt er til að takmarka hreyfingu á þeim og verja vöruna fyrir skemmdum. Frekar skal binda á milli bita í brettinu heldur en festa við ysta bita brettis. 

Pallets - Strapping 

Rör
Rör ætti að festa við viðarbretti með heppilegu hlífðarefni. Þessar tegundir sendinga þurfa sérstakar pakkningar til að koma í veg fyrir skemmdir á farartæjumi, flugvélum eða öðrum sendingum meðan á flutningi stendur. Þetta á sérstaklega við um rör, stangir, lagnaefni, útblástursrör o.s.frv. 

Pallets - BundleVöndull (e. Bundle)
Ef hlutir eru tveir eða fleiri ætti að festa þá saman. Vöndull eykur stöðugleika sendingar og getur minnkað hættu á að vara týnist eða skemmist skyldi hleðsla losna af bretti meðan á flutningi stendur. 

Pallets - Blocking materialsFestingar
Festingar eru notaðar við pökkun eða lestun til að tryggja að hlutir haldist á sínum stað meðan á flutningi stendur. Festingar skorða því hlutinn við brettið. 

Pallets - SecuringÖryggisfestingar
Nota skal bönd til að tryggja að vöndull sé fastur við brettið.

 

Rúllur og kefli
Rúllur og kefli geta hreyfst úr stað í flutningi vegna lögunar. Rúllum og keflum er einnig mjög erfitt að lyfta nema með sérstökum tækjum. Þessa hluti verður að flytja á ákveðinn hátt (á hliðinni eða láta þá snúa fram) og vegna þyngdar þeirra og af öryggisástæðum er nauðsynlegt að tryggja alltaf festingar. Það er því brýnt að rúllur og kefli séu tryggilega fest við bretti í flutningi.

Pallets - Securing Spools and ReelsBindingar:
Þegar hlutir eins og t.d. palletta eru notaðir til að skorða vöru skal tryggt að bönd séu vel strekkt.
Festingar:
Naglar, skrúfur eða hefti ætti að nota til þess að festa bindingar og vörur við bretti.
Bönd:
Mælt er með notkun járnbanda frekar en plastbanda (e. Strapping) og ætti að festa þau þannig að þau skemmist ekki í flutningi. Böndin munu tryggja að varan losni ekki frá hlífum sínum.