Tollafgreiðsla er innifalin í þjónustu TNT Hraðflutninga
TNT tollafgreiðir allar sendingar til bæði fyrirtækja og einstaklinga og er sú þjónusta innifalin í flutningsverði.
Liðið geta nokkrir dagar frá komu sendingar til landsins þar til gengið hefur verið frá tollafgreiðslu.
Með umboði fyrir skuldfærslu aðflutningsgjalda frá viðskiptavinum getur TNT látið skuldfæra aðflutningsgjöld á tollkrít móttakanda hjá Tollstjóra. Hér er hægt að nálgast umboð til skuldfærslu hjá tollstjóra.
Vantar þig aðstoð við tollamál og reikninga?
Tollareglur í öllum löndum krefjast þess að vörureikningur fylgi sendingunni. Til þess að tollafgreiðsla geti farið fram á Íslandi og annars staðar í heiminum verður að vera til staðar fullnægjandi reikningur og ef við á Euro-skírteini (eða Euro-yfirlýsing).
Skoðaðu leiðbeiningar um útfyllingu reiknings og Euro-yfirlýsingar.
Er verið að senda gjöf? Eða er verið að senda vöru í viðgerð eða endursenda?
Hafðu samband við þjónustufulltrúa til að fá nánari leiðbeiningar í síma 580-1010.