Gjafir
Ef verið er að senda gjafir þá bætast engin tollagjöld við flutningskostnaðinn. Athuga þarf þó að verðgildið á sendingunni verður að vera undir 10.000 krónum. Ef verðgildið er hærra þá þarf að greiða tollagjöld af gjöfinni.
Hér er gert ráð fyrir að einstaklingur sé að senda einstaklingi gjöf eða fyrirtæki sé að senda öðru fyrirtæki gjöf.
Athugið að einstaklingar geta ekki sent fyrirtækjum gjöf eða öfugt, án þess að tollagjöld leggist ofan á flutningskostnaðinn.