Viðgerðir
Vara sem verið er að senda í viðgerð, þarf að hafa fylgiskjöl eins og aðrar vörur þ.e. reikningur verður að fylgja.
Nákvæm innihaldslýsing á reikningnum skiptir miklu máli.
Ef vara er að fara út til viðgerðar verður að vera raðnúmer, týpunúmer eða módelnúmer á reikningnum. Á reikningi verður að standa að vara sé að fara til viðgerðar "For repair".
Endursendingar
Vara sem verið er að endursenda, þarf að hafa fylgiskjöl eins og aðrar vörur þ.e. reikningur verður að fylgja.
Innflutningsnúmer er lykilatriði
Ef um endursendingu á vöru er að ræða og sendandi gerir beiðni um skoðun hjá tollinum þá verður innflutningsnúmer að vera á reikningnum. (innflutningsnúmer er það númer sem fylgdi vörunni þegar hún kom upphaflega inn í landið).