Leitaðu í atriðisorðaskrá yfir flutningaþjónustur TNT.
Latneska og þýðir “samkvæmt verðmæti”.Öll tollgjöld og skattar eru byggð á þessu verðmæti.
Vísar til þess þegar sending er afhent móttakanda hennar. Móttakandi er beðinn um að kvitta fyrir móttöku, sem er staðfesting á afhendingu sendingarinnar (POD).
Alþjóðlegir viðskiptaskilmálar til að skilgreina lagalega ábyrgð milli kaupanda og seljanda. Skilmálar þessir ættu að birtast á reikningi til að hægt sé að gera rétta tollskýrslu og reikna rétta skatta og gjöld.
Alþjóðleg tollskjöl sem heimila tímabundin flutning vara án greiðslu tollgjalda og skatta, þetta er venjulega notað fyrir sýningarvörur. ATA carnet eru aðeins meðhöndluð gegnum sérþjónustur TNT og aldrei gegnum hefðbundnar þjónustur.
Einstaklingur og/eða lögaðili sem er undir viðskiptalegum eða fjárhagslegum viðurlögum (svo sem frystingu fjármagns eða eigna) eða hefur verið kærður og misst útflutningsleyfi (og er þess vegna ekki heimilt að stunda útflutning/endurútflutning í ákveðin tíma). Óheimilt er að flytja sendingar til/frá aðila sem er á lista yfir bannaða aðila
Verklag þar sem viðskiptavinur getur pantað að sending sé sótt. TNT bókanir geta verið gerðar gegnum viðskiptahugbúnað ins og myTNT eða gegnum þjónustudeild.
Latneska sem notuð er um ódýran varning, þar sem tollayfirvöld líta svo á að það sé hagkvæmara að sleppa innheimtu á tollum og sköttum frekar en að innheimta þau. Vegna þessa eru búin til lágvöruviðmið
Electronic Data Interchange, rafræn gagnaskipti.
Sendur varningur sem inniheldur eitthvað annað en pappírsskjöl.
Heimilisfangið sem sent er til baka á ef ekki er hægt að koma sendingu til skila.
PC hugbúnaður sem TNT útvegar viðskiptavinum sínum og leyfir einfaldan aðgang að öllum vörum og þjónustu TNT.
PC hugbúnaður sem TNT útvegar viðskiptavinum sínum og leyfir einfaldan aðgang að öllum vörum og þjónustu TNT.
Farmbréf fyrir loftflutninga sem gildir sem kvittun fyrir sendanda. Það sýnir að flugrekandinn hefur samþykkt uppgefinn varning og skyldar hann til að flytja sendinguna á áfangastað (flugvöll) samkvæmt tilgreindum skilyrðum.
Flutningsskjal sem er samningur milli flutningsaðila og sendanda varðandi flutningsskilmála.
Skjalfest yfirlit af varningnum sem fluttur er og frekari upplýsingar um innihaldið, eins og:
Mikilvægur hluti flutninganets okkar. Flugmiðstöð TNT í Evrópu er staðsett í Liege, Belgíu og evrópska landflutningamiðstöðin er í Duiven, Hollandi.
Fyrirtæki sem annast faglegan flutning á fólki eða varningi.
Allar okkar aðstöður og tæki sem sendingar eru fluttar í gegnum. TNT flutningskerfið, sem samanstendur af vöruhúsum og miðlægum flokkunarstöðvum, styður við vörur og þjónustur fyrirtækisins.
Geta TNT til að tryggja viðskiptavinum áreiðanlega þjónustulausn. Þessi geta takmarkast ekki bara við vöruflutninga, heldur líka við innihald innheimtuvalkosta, viðskiptahugbúnað, þjónustuver o.s.frv..
Reglur og reglugerðir settar á af TNT fyrir flutning á vörum. Þær eru prentaðar aftan á sendingarnótuna og eru líka að finna hér.
Jafngilt ‘sendingu’. Eitt eða fleiri stykki af vörum sem eru samþykktar af flutningsaðilanum frá einum sendanda, á einum ákveðnum tíma, einu ákveðnu heimilisfangi, kvittað fyrir í einni hendingu og flutt undir einni sendingarnótu til eins ákveðins móttakanda, á einn ákveðinn afhendingarstað.
Flutningur sendingar frá einum flutningsaðila yfir til annars, eða það sem er algengara, frá einu flutningstæki til annars á meðan flutningi stendur.
Svæði innan lands (svo sem höfn, flugvöllur, vöruhús eða hvaða tilnefnda svæði sem er) sem talið er utan tollsvæðis. Innflutningsaðilar geta flutt erlendan varning inn á frísvæði án þess að þurfa að greiða af þeim skatta eða tolla. Varningurinn bíður síðan endanlegrar tollafgreiðslu, framhaldsflutnings eða endurútflutnings. Getur einnig verið þekkt sem fríhöfn, frívöruhús, fríviðskiptasvæði og erlent viðskiptasvæði.
Vara sem geymd er á frísvæði eða í öruggu vöruhúsi. Meðan hún er þar, þá er hún ekki tollafgreidd og því laus við innflutningstolla og skatta.
Skjal sem útfyllt er af sendanda. Fylgibréf er flutningssamningur, sem inniheldur allar upplýsingar sendingarinnar og er einnig talið sem kvittun.
Tilkynning sem send er hagsmunaaðilum um að sending sé á útleið í vörukeðjunni. Þessi tilkynning er send viðskiptavini eða sendanda og tilgreinir þá hluti sem sendir eru. ASN getur líka innihaldið áætlaðan afhendingartíma.
Viðskipti milli fyrirtækis og einstaklings.
Viðskipti milli tveggja fyrirtækja.
Greiðsla á tollum og sköttum er vanalega á ábyrgð móttakanda, en þó bíður TNT uppá að sendandi geti greitt þennan kostnað hjá sér á mörgum stöðum.
Skilmálar sem skilgreina hver greiðir fyrir afhendingu sendingar, og/eða lengd greiðslufrests á reikningi.
Hættulegur varningur eru hlutir eða efni sem geta verið hættuleg heilsu/öryggi fólks, eignum eða umhverfinu. Þær þurfa sérstaka meðhöndlun eða heimildir svo hægt sé að flytja þær með TNT. Það eru ýmsar flokkanir á hættulegum varningi, sem fara eftir hættustigi þeirra.
Það að flytja vöru inn frá erlendu landi.
ISO eru sjálfstæð samtök og aðilar þess eru viðurkennd yfirvöld þegar kemur að stöðlum. TNT er með ISO 9001 og ISO 14001 skírteini, og líka OHSAS 18001.
Á við um ferli eða leið sem sending fer frá sendanda til móttakanda.
Gjald sem innheimt er samkvæmt farmbréfi og þyngd sendingar af flugfélagi/flugrekanda fyrir að meðhöndla sendinguna. Þetta gjald er innheimt sem viðbót við hefðbundin flutningsgjöld.
Persóna eða lögaðili sem framkvæmir miðlarastarfsemi.
Miðlun er þjónusta sem er framkvæmd af tollafgreiðslufyrirtækjum til að klára tollafgreiðslu fyrir hönd útflytjanda eða innflytjanda.
Einstaklingurinn eða fyrirtækið sem á að móttaka sendinguna.
Greiðsluskilmálar sem vísar til þess að sending sé reikningsfærð á móttakanda. “Móttakandi greiðir”-sending getur verið tvenns konar: innflutningur-móttakandi-greiðir eða útflutningur-móttakandi-greiðir.
Sending sem er komið í kring og greidd af móttakanda.
Landið sem sending er skráð á og þar sem heimilisfang móttakanda er.
Viðskiptahugbúnaður á netinu sem TNT útvegar viðskiptavinum sínum og leyfir einfaldan aðgang að öllum vörum og þjónustu TNT.
Fyrirtæki eða einstaklingur sem hefur ekki áður notað þjónustu TNT og óskar eftir að sending sé sótt á óþekkt heimilisfang eða hefur ekki átt í viðskiptum við TNT seinustu 26 vikur.
Það að sækja sendingu hjá sendanda af bílstjóra TNT. “Pickup” (líka kallað sækja sendingu ) markar upphafið á flutningsferlinu, sem varir þangað til sending er afhent til móttakanda.
Opinbert skjal sem gefið er út til að staðfesta að plöntur eða plöntuafurðir hafi verið skoðaðar í samræmi við viðeigandi reglur og standist allar plöntuheilbrigðisreglugerðir í rannsóknarlandinu.
Greiðslumöguleiki sem leyfir móttakanda sendingar að greiða bílstjóra við afhendingu.
Einstakt númer sem notað er til að auðkenna viðskiptavin og er tengt við allar færslur hans.
Annað hvort “móttakandi greiðir” eða “sendandi greiðir”. Ef ekkert er tekið fram, þá er sendingarkostnaður alltaf reikningsfærður á sendanda. Skjalasendingar eru alltaf reikningsfærðar á sendanda. Bæði “sendandi greiðir” og “móttakandi greiðir” fyrirkomulag eru í boði til fjölmargra áfangastaða. Ef móttakandi greiðir ekki reikninginn, þá mun TNT snúa sér til sendanda fyrir öllum kostnaði og gjöldum. Sendandi, móttakandi og allir aðrir aðilar sem koma að samningnum við TNT bera sameiginlega og óskipta ábyrgð fyrir öllum kostnaði sem er reikningsfærður.
Skjal sem vanalega þarf fyrir tollafgreiðslu, sem útgefið er af seljanda til kaupanda, þar sem fram kemur lýsing, magn, verð á einingu, heildarverð, upprunaland varningsins sem er verið að selja.
Vilji viðskiptavinur fylgjast með sendingu notar hann veflausn TNT til að rekja hana. Þetta krefst 9 tölustafa sendingarnúmers eða tilvísunarnúmers viðskiptavinar.
Rými sem hlutur tekur, reiknað með því að margfalda saman lengd, breidd og hæð.
Notað af TNT til að reikna rúmmálsþyngd sendingar til að tryggja að stórar, léttar sendingar séu rukkaðar samkvæmt rýminu sem þær taka frekar en raunþyngd þeirra.
Rúmmálsþyngd sendingar er reiknuð með því að reikna rúmmál sendingar og margfalda hana við ákveðin stuðul (rúmmálsumreiknistuðul).
Hraðsendingarþjónusta þar sem lofað er að afhending gerist sama dag og sending er sótt.
Iðnaður eða geiri sem TNT hefur þróað samverkandi og mjög skilvirka lausn fyrir, hönnuð til að fullnægja sérstökum þörfum og kröfum viðskiptavinanna.
Alþjóðlegar reglur um flokkun vara byggðar á stöðluðum nafna- og númerakerfum til að skilgreina varning eftir því úr hverju hann er búinn til og hvað hann er notaður í.
Einstaklingurinn eða fyrirtækið sem hefur tekið til og sent sendingu.
Sending er merkt “sendandi greiðir” ef tekjurnar verða til í sendingarlandinu, þ.e. reikningurinn er sendur sendanda. Sendandi greiðir allan kostnað af flutningi, tryggingu (ef við á), tollafgreiðslu og allan annan kostnað. Virðisaukaskattur og skattar, innflutningstollar og önnur tengd gjöld af innflutningi eru reikningsfærð á móttakanda eða innflutningsaðila.
Einn eða fleiri pakkar, sem eru fluttir saman á sama tíma.
Einstakt númer sem auðkennir sendinguna. Það er prentað á fylgibréfið og notað til að rekja sendinguna, frá því hún er sótt þar til hún er afhent.
Fyrir mikilvægar, hættulegar eða brothættar sendingar sem krefjast sérþjálfaðs starfsfólks og sérstakra flutningstækja, meðhöndlunaraðstöðu og umbúða. Sérmeðhöndlun TNT innifelur hættulegan varning, hraðflutninga fyrir heilbrigðisþjónustu og öryggisflutninga.
Sá tími dags sem ekki lengur er hægt er bóka sendingu svo það náist að sækja hana sama dag gegnum flutningsnet TNT.
Ferli til staðfesta hvort sendandi eða móttakandi sé á lista yfir bannaða aðila. Allar sendingar falla undir þetta skoðunarferli TNT.
Skjalfest undirritun móttakanda sem staðfestir afhendingu á sendingu.
Sú tegund af glæpsamlegu athæfi sem skilgreind er sem: að notfæra sér aðstöðu sína, villa á sér heimildir, eða ganga á rétt annarar persónu til að hagnast á því persónulega. TNT er meðvitað um að að merki fyrirtækisins er notað á vefsíðum og í tölvupóstum til að villa um fyrir fólki sem verslar á netinu. Vinsamlegast smelltu hér fyrir frekari upplýsingur um hvað sé hægt að gera ef þig grunar að þú hafir verið fórnarlamb svika.
Þegar sending er sótt hjá sendanda af bílstjóra TNT. Að sækja sendingu (líka kallað pickup) markar upphaf flutningsferilsins, sem varir alveg þar til sendingin hefur verið afhend móttakanda.
Krafa gerð á hendur flutningsaðila vegna taps, skemmda, tafa eða ofreiknuðu flutningsgjaldi.
Ferli til að tollafgreiða vöru hjá tollafyfirvöldum svo að hægt sé að flytja hana formlega inn í landið.
Aðili eða fyrirtæki sem hefur leyfi tollayfirvalda til að annast samskipti innflytjanda/útflytjanda við þau. Vanalega ábyrgur fyrir því að nálgast og leggja fram öll nauðsynleg skjöl svo hægt sé að tollafgreiða vörur.
Líka þekkt sem tollgjöld. Gjald sem greitt er til tollayfirvalda þegar vara er flutt inn. Gjaldið er byggt á flokkun hvers eðlis varan er og vanalega innheimt sem hlutfall af verðmæti vörunnar.
Stjórnvald sem ber ábyrgð á umsjón tollalaga, innheimtu tolla og skatta, beitingu laga og reglugerða er varða innflutning, útflutning, hreyfingu eða geymslu á vörum.
Yfirlýsing eða aðgerð (formleg, óformleg eða rafræn) þar sem nauðsynlegar upplýsingar eru lagðar fram svo hægt sé að tollafgreiða vöru.
Viðbótarábyrgð fyrir týndum eða skemmdum varning, frá því að vera yfir lágmarksbótum og upp að hámarksverðmæti, samkvæmt tryggingarskírteininu. Ábyrgðaraðili mun bæta sendanda, eða öðrum hagsmunaaðilum, samkvæmt skilmálum, jafnvel þó að TNT sé ekki ábyrgt fyrir tapinu eða tjóninu.
Gjald sem innheimt er fyrir hönd sendanda vegna innheimtu á tollum og sköttum.
Landið þar sem vara er ræktuð eða framleidd. Upprunaland getur verið annað en útflutningsland vöru.
Skjal sem staðfestir uppruna vara, útgefið af lögbærum yfirvöldum þess lands.
Reglugerðir tengdar eftirliti á flutningi á sérstökum vörum til tiltekinna landa og áframhaldandi alþjóðlegum viðurlögum. TNT mun aðeins senda í samræmi við reglugerðir og viðurlög sett á af ýmsum alþjóðlegum eftirlitsaðilum og einstökum löndum.
Landið þaðan sem varan er send frá. Það er þó ekki endilega landið þar sem varan er framleidd eða ræktuð.
Heimild frá lögbærum yfirvöldum lands sem leyfir ákveðinn útflutning.
Það að senda sendingu út fyrir landsteina.
Valkostur er valfrjáls viðauki við þjónustur okkar. Viðskiptavinur getur valið að fá ýmsar viðbótarþjónustur, sem hann greiðir fyrir.
Alþjóðasamningur sem gildir um flutning varnings í flugi milli landa. Hann takmarkar sérstaklega ábyrgð farmflytjanda gegn skemmdum á vörum, eða töpuðum vörum, meðan þær eru í flutningi.
Skírteini sem er nauðsynlegt fyrir fatasendingar til Bandaríkja N-Ameríku.
Verð sem TNT rukkar viðskiptavini sína eftir.
Áætlað verð á þjónustu byggt á skilyrðum sem viðskiptavinur leggur fram.
Gjald fyrir viðbótarþjónustu sendingar.
Viðbótarábyrgð fyrir týndum eða skemmdum varning, frá því að vera yfir lágmarksbótum og upp að hámarksverðmæti, samkvæmt tryggingarskírteininu. Ábyrgðaraðili mun bæta sendanda, eða öðrum hagsmunaaðilum, samkvæmt skilmálum, jafnvel þó að TNT sé ekki ábyrgt fyrir tapinu eða tjóninu.
Lagaleg úrræði af stjórnmálalegum og viðskiptalegum toga sem stefna að því að ná fram breytingum í hegðun eða stefnum, svo sem brotum á alþjóðlegum lögum eða mannréttindum, eða breyta stefnum sem virða ekki viðurkennd lög eða lýðræðislegar grundvallarreglur.
Algjört bann við efnahagslegum samskiptum (verslun og viðskipti) og stjórnmálalegum samskiptum (stjórnmálasamband, vegabréfsáritanir) við ákveðið land, sett á í viðleitni til þess að einangra landið og búa til erfiðleika fyrir stjórnvöld, sem þvingar þau til að bregðast við undirliggjandi máli.
Viðskiptahugbúnaður, líka þekktur sem vefþjónustur. Einfaldur, notendavænn hugbúnaður, sem TNT útvegar viðskiptavinum sínum, sem leyfir einfaldan aðgang að öllum vörum og þjónustu TNT. TNT er með 3 tegundir af viðskiptahugbúnaði: PC hugbúnaður(express shipper & express manager) vefþjónusta (myTNT & Express manager) og samtengd lausn(Express Connect).
Þjónusta sem hefur verið komið í kring af sendanda og er greidd af móttakanda.
Stöð og vöruhús þar sem flutningatæki hlaða og afhlaða varning, annað hvort frá sóttum sendingum eða til afhendinga.
Ferli sem hefst á því að finna (hrá)efni og endar með afhendingu á fullunninni vöru eða þjónustu til viðskiptavinar. Innan þessarar vörukeðju eru söluaðilar, birgjar og viðskiptavinir.
Vinsamlegast skoðið “þjónustan” fyrir frekari upplýsingar um hvaða þjónustu og vörur við bjóðum uppá.
TNT býður uppá ýmsar þjónustur, þar á meðal tíma mikilvægar þjónustur, tíma- og dag skilgreindar þjónustur og fraktþjónustur.
Viðskipta samkomulag milli þjónustuveitanda og notanda þjónustunnar. Þjónustusamningar innihalda oft, en eru ekki takmarkaðir við, skilgreiningu á þjónustu, gæðamælingar, úrlausn vandamála, skyldur viðskiptavinar, ábyrgðir, óvæntar uppákomur og/eða uppsögn samnings.
Aðgerðir sem farið er í sem viðbrögð við því þegar þjónusta bregst, t.d. þegar sending tefst eða tapast. Þetta ferli er vanalega framkvæmt af þjónustufulltrúum.
Kort sem bílstjóri TNT skilur eftir ef afhending hefur ekki tekist. Til að fá aðra afhendingu, þá geturðu sent okkur línu eða haft samband .
TNT vinnur með tvær gerðir þyngdar: raunþyngd og uppgefna þyngd. Uppgefin þyngd er gefin upp af viðskiptavini í pappírum sem fylgja sendingu. Raunþyngd er mæld af TNT.