Við erum með öll svörin
TNT býður viðskiptavinum um allan heim upp á fjölda þjónustuleiða í flutningum. Vinsamlegast skoðaðu síðuna Þjónusta fyrir frekari upplýsingar.
Ef þetta er tilfallandi pöntun til að láta sækja geturðu bókað á netinu án þess að þurfa að skrá þig. Ef verið er að flytja oft, gætu aðrar veflausnir fyrir sendingar,eins og skráning á myTNT, verið hentugri. Hafðu samband við okkur ef þíg vantar aðstoð við að velja réttu lausnina fyrir þitt fyrirtæki.
Hægt er að fá tilboð í gegnum veflausn okkar fyrir bókun. Eða hafa samband við okkur og við hjálpum með glöðu geði.
Það fer eftir þjónustunni sem beðið er um og staðsetningu þar sem á að sækja og þar sem afhending fer fram. Vinsamlegast athugaðu flutningstíma fyrir frekari upplýsingar.
Nei, það þarf ekki. Þú getur einfaldlega bókað á netinu með því að nota einn af þeim greiðslumöguleikum á netinu sem í boði eru. Ef flytja á oft, gætu aðrar veflausnir fyrir sendingar eins og ExpressShipper, ExpressManager eða ExpressConnect verið hentugri. Hafðu samband við okkur ef þig vantar aðstoð við að velja réttu lausnina fyrir þitt fyrirtæki.
TNT notar HTTPS - sem er staðlaður samskiptamáti fyrir internetið og notar Secure Socket Layer (SSL), dulkóðunartækni sem er viðtekinn staðall í tæknigeiranum, til að tryggja öryggi debet- eða kreditkortaupplýsinga í samskiptum á netinu.
Flestir pakkar sem bókaðir eru að morgni verða sóttir samdægurs. Fyrir sum afskekkt svæði þarf að skrá bókanir fyrir pakka degi áður, svo öruggt sé að sótt verði næsta dag. Hafðu samband við okkur til að fá aðstoð.
Ef þú veist ekki póstnúmer áfangastaðar skaltu athuga það hjá viðtakanda eða hafa samband við okkur. Röng póstnúmer geta valdið töfum í flutningi og leitt til óþarfa kostnaðar.
Til að breyta eða hætta við bókunina, vinsamlegast hafðu samband við okkur.
Veftól TNT sannreyna póstnúmerið á móti uppgefnu heimilisfangi. Vinsamlegast gakktu úr skugga um að póstnúmerið sé rétt. Ef þú ert viss um að það sé rétt, þá geturðu fært póstnúmerið inn handvirkt. Vinsamlegast gangtu úr skugga um að allir áskildir reitir séu rétt útfylltir. Rangar upplýsingar geta valdið töfum í flutningi.
Flutningstímar okkar veita upplýsingar um alla áfangastaði sem við getum sent til frá þínum stað. Þegar þú bókar á netinu eða notar veflausnir okkar fyrir sendinguathugum við hvort við getum sent á þann áfangastað sem óskað er eftir.
Öll lönd/svæði sem eru í töflu okkar yfir flutningstíma geta flutt sendingar bæði inn og út. Hafðu samband við okkur til að fá frekari upplýsingar, ef þarf. Express-Import möguleikinn í myTNT gæti hentað vel ef þú ert oft að flytja inn.
Nei. TNT getur ekki afhent í pósthólf. Krafist er fulls heimilisfangs.
Takmarkanir á þyngd og stærð eru mismunandi eftir þjónustum og áfangastað. Fer sendingin þín fram yfir staðlaðar takmarkanir okkar? Ekki hika við að hafa samband.
Nákvæm mál og þyngd eru nauðsynleg til að tryggja afhendingarhraða. Séu þessar upplýsingar ekki nákvæmar gæti pakkinn tafist í flutningum, krafa verður gerð um mismun kostnaðar og hugsanlega leggst á gjald vegna aukaþjónustu, áður en pakkinn getur haldið áfram för sinni. Skoðaðu leiðarvísinn um hvernig reikna skuli út rúmmálsþyngd.
TNT veitir sendingarþjónustu milli fyrirtækja fyrir skjöl og böggla. Mögulegt er að senda ákveðnar hættulegar vörur og varasöm efni, að uppfylltum viðeigandi skilyrðum. Sjá Hættulegar vörur til að fá lista yfir hluti sem eru háðir takmörkunum og við getum flutt fyrir þig. Til að fá frekari upplýsingar skaltu ekki hika við að hafa samband.
Sjá Hættulegar vörur til að fá lista yfir vörur sem eru háðar takmörkunum í lögum eða reglugerðum, og má aðeins senda á ákveðinn hátt. Til að fá frekari upplýsingar skaltu ekki hika við að hafa samband.
Vinsamlegast lestu hlutann Alþjóðleg reglufylgni til að fá frekari upplýsingar um hvernig á að ganga frá tollamálum og fræðast um útflutningseftirlit. Þú getur einnig skoðað hlutann Hvernig á að pakka til að fá góð ráð um hvernig skuli ganga frá sendingu á sem bestan hátt.
Við seljum úrval af pökkunarumbúðum frá TNT - allt frá sjálflokandi plastumslögum til pappakassa og flöskuumbúða. Sjá Hvernig á að pakka til að fá ráð og sjá leiðir til innpökkunar. (ATH: TNT hafnar allri bótaábyrgð vegna veittra ráðlegginga fyrir innpökkun. Viðskiptavinurinn er ábyrgur fyrir því að ganga úr skugga um að innpökkun sé viðunandi fyrir flutning).
Já. Umbúðir frá TNT má panta með eyðublaðinu Panta birgðir. Vegna reglulegra flutninga eða sérstakra þarfa, vinsamlegast hafðu samband við okkur.
Öllum sendingum TNT þurfa að fylgja fylgibréf og merkingar á pökkum. Öllum vörusendingum þarf að fylgja vörureikningur, sama hvert sendingin er að fara. Bæði skjölin er hægt að stofna sjálfkrafa þegar þú bókar á netinu eða notar veflausnir fyrir sendingar.
Öllum vörusendingum þarf að fylgja vörureikningur,sama hvert sendingin er að fara. Sumir hlutir teljast vera skjöl og þurfa ekki vörureikning.
Fylgibréf (einnig kallað farmbréf eða flugfarmbréf) er grundvallarskjal sem fylgir TNT-sendingunni. Það veitir allar nauðsynlegar upplýsingar sem tryggja hraða og fagmannlega meðhöndlun sendingar, eins og heimilisfang uppruna- og áfangastaða, reikningsnúmer og aðrar mikilvægar upplýsingar. Fylgibréf er stofnað sjálfkrafa þegar þú bókar á netinu eða notar veflausnir fyrir sendingar.
Alþjóðlegum sendingum þarf að fylgja sérstakt alþjóðlegt fylgibréf. Sendingar sem krefjast sérstakrar meðhöndlunar gætu þurft sérhæft fylgibréf, óháð endanlegum áfangastað. Viðeigandi fylgibréf er stofnað sjálfkrafa þegar þú bókar á netinu eða notar veflausnir fyrir sendingar.
Nei. Þegar þú bókar á netinu eða notar veflausn fyrir sendingar, verður fylgibréf búið til fyrir þig.
Vinsamlegast fylltu út eyðublaðið með beiðni þinni og við höfum samband.
Já. Ef þú ert ekki með prentara, vinsamlegast hafðu samband við okkur til að biðja bílstjórann um að koma með fylgibréf. Hins vegar þarf alltaf að útvega vörureikning með sendingunni.
TNT fylgir ákveðinni „stefnu um óþekkta sendendur“ þegar einhver er í viðskiptum í fyrsta skipti. Ef þú ert að senda með TNT í fyrsta skipti þarf pakkinn að vera opinn svo bílstjórinn geti athugað hvort samþykkja megi innihaldið fyrir flutning með TNT. Allir pakkar geta lent í öryggisskoðun. Þetta getur falið í sér gegnumlýsingu, leit að leifum af sprengiefni og aðrar öryggisathuganir. Athugaðu að opinberar stofnanir (eins og tollur, landamæraeftirlit eða lögregla) geta opnað hvaða sendingu sem er á meðan hún er í umsjá TNT. TNT getur ekki haft nein áhrif á slíkar beiðnir.
Hægt er að lesa Flutningsskilmála hér.
Almenn bótaábyrgð okkar vegna taps eða tjóns kemur fram í flutningsskilmálum okkar. Einnig má kaupa viðbótartryggingu . Veldu einfaldlega tryggingavalkostinn þegar þú bókar á netinu eða láttu þjónustuver vita þegar þú ert að ganga frá bókuninni.
Til að finna út hvort sendingin hafi verið afhent, hver kvittaði fyrir móttöku og aðrar upplýsingar, skaltu einfaldlega slá inn sendingarnúmer TNT á síðunni Rekja sendingu .
Hafi bílstjóri reynt að afhenda til viðskiptavinar og skilið eftir spjald, þá getur viðskiptavinurinn óskað eftir endurtekinni afhendingu. Hafi bílstjórinn ekki enn reynt að afhenda eða viðskiptavinurinn er ekki með spjaldið fyrir endurtekna afhendingu, getur hann haft samband við okkur.. Fyrirspurn viðskiptavinarins þarf að fylgja sendingarnúmer, heimilisfang afhendingar og dagsetning endurtekinnar afhendingar. Ath.: Endurtekin afhending er eingöngu möguleg frá mánudegi til föstudags.
Já. Hafi þér borist spjald frá bílstjóranum sem segir „við misstum af þér“, skaltu vinsamlegast nota þjónustu fyrir endurtekna afhendingu til að finna nýjan afhendingartíma, eða gera ráðstafanir til að sækja pakkann í afgreiðslu okkar.
Ánægja þín er það allra mikilvægasta í okkar huga. Vinsamlegast hafðu samband við okkur til að senda inn kvörtun.
Já. Þú getur farið með pakkann í afgreiðslu TNT eða á næsta pósthús. Hafi pakkinn þinn ekki verið sóttur á tilteknum degi, vinsamlegast hafðu samband við okkur.
Þú getur athugað stöðu sendingar hvenær sem er með því að nota Rekja sendingu.
Þegar sent er þannig að sendandi greiðir toll, er gjöldum vegna flutnings og tolls skipt á tvo reikninga, þetta sama á við ef greitt er fyrir flutning og tolla við móttöku sendingar.
Níu talna pöntunarnúmer (einnig kallað númer farmbréfs eða fylgibréfs) má finna á miðjum reikningnum fyrir neðan nafn sendanda.
Verðið byggir á stærð, rúmmáli, þjónustu og áfangastað sendingarinnar. Sendingar geta einnig verið háðar viðbótargjöldum fyrir aukaþjónustu.
Við reiknum bæði raunþyngd og rúmmálsþyngd sendingarinnar. Hærri talan af þessu tvennu ákvarðar verðið. Til að finna út rúmmálsþyngd skal fyrst reikna rúmmál pakkans og margfalda það svo með viðeigandi reiknistuðli. Sjá Reikna út rúmmálsþyngd nánari upplýsingar.
Ánægja þín er það allra mikilvægasta í okkar huga. Ef þú telur að sendingin sé týnd, vinsamlegast hafðu samband við okkur til að leggja fram kvörtun og setja af stað ferli til að finna hlutina þína.
Ánægja þín er það allra mikilvægasta í okkar huga. Hafi sendingin skemmst í flutningi, vinsamlegast hafðu samband við okkur svo við getum metið kröfuna.
Krefjandinn verður að vera sá sem bókaði sendinguna. Til réttlætingar kröfu þinni verður hugsanlega beðið um sönnun fyrir skemmdum, þar með talið ytra pökkunarefni. Innihald sendingarinnar og upprunalegt pökkunarefni ættu að vera tiltæk svo mögulegt sé að skoða það á áfangastað. TNT gæti einnig krafist sönnunar á verðgildi hlutarins/hlutanna. Þessar upplýsingar ættu að berast með kröfu þinni.
Þegar þú hefur skráð kröfuna færðu sendan tengil á kröfueyðublað á netinu. Fylltu einfaldlega inn í eyðublaðið á netinu með öllum viðeigandi upplýsingum, og tilgreindu númer fylgibréfs, sendingardagsetningu og allt sem styður við málið, meðal annars reikninga, ljósmyndir og/eða bæklinga eða gögn sem lýsa vörunni. Vinsamlegast lýstu öllum smáatriðum til að veita sem allra mestar upplýsingar. Skyldi okkur vanta einhverjar tilteknar upplýsingar, höfum við samband. Kröfuteymið okkar rannsakar málið og leysir úr kröfu þinni eins fljótt og hægt er. Markmið okkar er að leysa úr kröfu þinni innan þriggja vikna frá móttöku fullunnins kröfueyðublaðs.
Við reynum að hafa vefsíðuna eins einfalda í notkun og mögulegt er. Hugsanlega þarftu Adobe® Reader® til að geta lesið sumt af því sem má hala niður, eins og Notandahandbók TNT.
Vefsíður okkar eru hannaðar fyrir IE 8, Safari 6, Firefox 33, Chrome 37 og allar síðari útgáfur. Vefsíðan er hönnuð þannig að hún hefur gott viðmót, svo upplifun notanda verði sem best á hvers kyns tækjum, eins og snjallsímum eða spjaldtölvum.
Þú þarft ekki að hala niður neinum viðbótum til að opna vefsíður TNT.
Til að fylgjast með geturðu gerst áskrifandi að fréttabréfinu okkar sem upplýsir þig um nýjustu fréttir og tilboð í hverjum mánuði. Eða skoðaðu TNT Fréttir. (Aðeins tiltækt í ákveðnum löndum).
Smákökur eru notandatengdar upplýsingar sem eru geymdar á tölvunni þinni og sóttar næst þegar þú heimsækir vefsvæði okkar eða vefþjón. Þannig getum við lagað innihaldið að þínum þörfum og haft það eins einfalt í notkun og mögulegt er. Að sjálfsögðu geturðu hvenær sem hafnað því að smákökur séu notaðar í vafranum þínum.
Vinsamlegast hafðu samband við okkur til að tilkynna öll tæknileg vandamál.
Hafi sendingin þín ekki verið sótt, vinsamlegast hafðu samband við okkur.
Þú getur fundið lista yfir öll lönd þaðan sem þú getur flutt inn sendingar, ásamt tiltækri þjónustu í boði hér. Einfaldasta leiðin til að skipuleggja að sending sé sótt fyrir innflutning er að nota Import-veflausnina okkar.
Já. Verified by Visa og Mastercard SecureCard auka vernd greiðslukortsins gegn óheimilaðri notkun þegar verslað er á netinu. Þegar þú hefur búið til lykilorð hjá útgefanda kortsins verður beðið um að númerið sé slegið inn í lok greiðsluferlisins.
„INCO“ skilmálar, eða International Commercial Terms (alþjóðlegt heiti á flutningsskilmálum), vísa til mismunandi skilmála sem gilda um sendingu sem er send til viðtakanda. Þeir segja ekki aðeins nákvæmlega til um hvenær eignarhald á vöru breytist og samkvæmt hvaða skilmálum, heldur einnig hver skal borga toll, skatta, flutningskostnað o.s.frv. Þeir birtast yfirleitt sem þriggja stafa upphafsstafaorð sem byggist á stuttri lýsingu, eins og FOB (Free On Board) og CIF (Cost, Insurance and Freight).